Hamingja og harmur - Belcanto

Salurinn

14. október

Miðaverð frá

3.900 kr.

Á tónleikunum förum við í ferðalag um ítölsku sönghefðina frá barokktímanum til rómantíska tímabilsins sem býður upp á ljóðræna fegurð, tilfinningalega dýpt og innsýn inn í þróun lagrænnar tjáningar sem kjarnast í Belcanto stílnum. Prógrammið hefst á tveimur vinsælum barokk aríum, Ombra mai fu eftir Händel úr óperunni Xerxes og Gia il sole dal Gange eftir   Allesandro Scarlatti. Hryggjarstykki tónleikana eru þrjár veraldlegar sonnettur eftir ljóðskáldið Petrarca sem Franz Liszt tónsetur á afar tilkomumikinn hátt. Verkið er afar krefjandi fyrir bæði píanistann og söngvarann, túlkunarlega og tæknilega. Eftir hlé fikrum við okkur áfram í tíma hefjum leika á trúarlegu verki eftir Rossini úr Petite messe solenelle og þarnæst í fimm sönglög eftir Bellini sem má segja að séu hin fullkomni undirbúningur fyrir Belcanto söngtæknina sem einkennir ítölsku óperuna. Sönglög Verdis sem koma í kjölfarið eru sjaldan eru flutt en þau eru nokkurskonar smærri útgáfa af stóru aríunum sem hann skrifar í óperum sínum. Rúsínan í pylsuendanum er svo arían Una furtiva lagrima úr L’elisir d’more eftir Donizetti.

Georg Friedrich Handel - Ombra mai fu úr óperuni Xerxes

Alessandro Scarlatti - Gia il sole dal Gange

Franz Liszt - Petrarca Þrjár sonnettur
- Pace non trovo, Agitato assai
- Benedetto sia il giorno, Lento, ma sempre un poco mosso
- I vidi in terra, Andante

Giacomo Rossini - Domine deus Úr Petite messe solinelle

Vincenzo Bellini - sönglög
- Ma rendi pur contento
- Maliconia
- Vaga Luna
- Dolente immagine
- Vanne o rosa fortunata

Giuseppe Verdi - Sönglög úr Composizioni da camera
- Il poveretto
- In solitaria stanza
- Ad una stella
- Donizetti
- Una furtiva lagrima úr óperuni L’elisir d’amore
- Belcanto

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger