© 2024 Tix Miðasala
Um okkur
Tix Miðasala ehf, sem á og rekur vefinn Tix.is, er miðasölufyrirtæki sem selur miða fyrir þriðja aðila á margvíslega viðburði ásamt því að útvega leik- og tónlistarhúsum miðasölukerfi til notkunar.
Í gegnum Tix hafa farið milljónir miða frá stofnun. Við þjónustum bæði mörg af virtustu menningar-, tónlistar- og listahús landsins ásamt því að sjá um sölu fyrir fjölmarga viðburðahaldara og hátíðir.
Viðburðahaldarar frá upphafi
Pantanir frá upphafi
Miðar seldir árlega
Starfsmenn
Tix Miðasala ehf var stofnuð í lok september 2014 og var vefurinn formlega opnaður þann 1. október 2014. Frá upphafi hefur okkar stefna verið að vera besti kosturinn fyrir þína miðasölu.
Tix selur miða fyrir öll helstu tónlistar-, menningar- og listahús á Íslandi. Harpa, Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið og fleiri hús eru meðal stærstu viðskiptavina Tix. Þá sjáum við einnig um sölu fyrir bæði staka viðburðahaldara ásamt því að þjónusta stærri viðburðafyrirtæki og hátíðir. Í gegnum árin höfum við þjónustað yfir 1.500 viðburðahaldara með mörg þúsund viðburði sem hefur skilað sér í sölu á miðum í milljónatali fyrir okkar viðskiptavini.
Hjá Tix miðasölu starfar hópur einstaklinga sem hafa samanlagt áratuga reynslu í miðasölu og þróun miðasölukerfa. Okkar sérhæfing er að þjónusta viðburðahaldara og erum við reiðubúin til að sjá um ferlið við þína miðasölu frá upphafi til enda.
Móðurfélag Tix heitir Tixly og er með starfsemi í 12 löndum. Fyrirtækið er íslenskt og eru höfuðstöðvar þess hér á landi. Tixly sér um að útvega menningar-, leik- og listahúsum hugbúnað fyrir miðasölu. Alls eru starfsmenn 46 talsins og í gegnum hugbúnað fyrirtækisins eru seldir milljóna miða árlega fyrir viðskiptavini. Mörg virtustu menningarhúsa heims eru viðskiptavinir Tixly.
Frekari upplýsingar um Tixly samsteypuna og hugbúnaðinn okkar má finna á vefsíðu okkar, tixly.com
Hafir þú áhuga á að selja miða hjá Tix, þá máttu endilega hafa samband við okkur á netfangið events@tix.is eða í síma 551-3800. Síminn er opinn alla virka daga milli 12:00 og 16:00 en utan opnunartíma í neyðartilfellum geta viðburðahaldarar náð í okkur í s. 7826886.
Öll almenn þjónusta við miðakaupendur fer fram í gegnum info@tix.is eða í síma 551-3800. Þá er einnig hægt að senda okkur skilaboð á Facebook (tix.is) utan opnunartíma og við svörum þér við fyrsta tækifæri. Síminn er opinn alla virka daga milli 12.00 og 16.00 en þó kemur iðulega fyrir að starfsfólk Tix séu á vaktinni á hinum ýmsu tímum og alls ekki láta þér koma á óvart ef þér er svarað á kvöldin eða um helgar. Markmið okkar er að svara tölvupóstum innan tveggja virkra daga en við náum í flestum tilfellum að svara mun fyrr.
Tix Miðasala ehf.
Hallgerðargata 13,
105 Reykjavík
Kennitala: 630914-0190
Virðisaukaskattsnúmer: 118057