© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
October 14
Ticket prices from
ISK 3,900




Á tónleikunum förum við í ferðalag um ítölsku sönghefðina frá barokktímanum til rómantíska tímabilsins sem býður upp á ljóðræna fegurð, tilfinningalega dýpt og innsýn inn í þróun lagrænnar tjáningar sem kjarnast í Belcanto stílnum. Prógrammið hefst á tveimur vinsælum barokk aríum, Ombra mai fu eftir Händel úr óperunni Xerxes og Gia il sole dal Gange eftir Allesandro Scarlatti. Hryggjarstykki tónleikana eru þrjár veraldlegar sonnettur eftir ljóðskáldið Petrarca sem Franz Liszt tónsetur á afar tilkomumikinn hátt. Verkið er afar krefjandi fyrir bæði píanistann og söngvarann, túlkunarlega og tæknilega. Eftir hlé fikrum við okkur áfram í tíma hefjum leika á trúarlegu verki eftir Rossini úr Petite messe solenelle og þarnæst í fimm sönglög eftir Bellini sem má segja að séu hin fullkomni undirbúningur fyrir Belcanto söngtæknina sem einkennir ítölsku óperuna. Sönglög Verdis sem koma í kjölfarið eru sjaldan eru flutt en þau eru nokkurskonar smærri útgáfa af stóru aríunum sem hann skrifar í óperum sínum. Rúsínan í pylsuendanum er svo arían Una furtiva lagrima úr L’elisir d’more eftir Donizetti.
Georg Friedrich Handel - Ombra mai fu úr óperuni Xerxes
Alessandro Scarlatti - Gia il sole dal Gange
Franz Liszt - Petrarca Þrjár sonnettur
- Pace non trovo, Agitato assai
- Benedetto sia il giorno, Lento, ma sempre un poco mosso
- I vidi in terra, Andante
Giacomo Rossini - Domine deus Úr Petite messe solinelle
Vincenzo Bellini - sönglög
- Ma rendi pur contento
- Maliconia
- Vaga Luna
- Dolente immagine
- Vanne o rosa fortunata
Giuseppe Verdi - Sönglög úr Composizioni da camera
- Il poveretto
- In solitaria stanza
- Ad una stella
- Donizetti
- Una furtiva lagrima úr óperuni L’elisir d’amore
- Belcanto

