Gull af mönnum - Vortónleikar Raddbandafélags Reykjavíkur

Háteigskirkja

14. maí

Miðaverð frá

3.500 kr.

Vortónleikar Raddbandafélags Reykjavíkur

Yfirskrift vortónleika Raddbandafélags Reykjavíkur í ár er „Gull af mönnum“ – og er það engin tilviljun.

Á dagskránni verða nokkur lög sem við tileinkum minningu hins dáða söngvara Björgvins Halldórssonar. Eitt þeirra hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá kórnum og á sérstakan stað í hjörtum okkar, lagið Gullvagninn.

Dagskráin verður að vanda fjölbreytt og stútfull af ýmsum gullmolum. Þar má finna allt frá Bítlalögum og rífandi Bond-stemningu yfir í sjómannasöngva, klassíska karlakóratónlist, barbershop og auðvitað okkar einkennandi húmor.

Raddbandafélagar mæta fullir tilhlökkunar til leiks og hlakka til að eiga gullslegna og eftirminnilega stund með ykkur í Háteigskirkju á þessum hátíðisdegi.

Píanó: Kári Allansson
Þverflauta: María Sigurðardóttir
Stjórnandi: Egill Gunnarsson

Verið hjartanlega velkomin á vortónleika Raddbandafélags Reykjavíkur.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger