© 2026 Tix Ticketing
Háteigskirkja
•
May 14
Ticket prices from
ISK 3,500




Vortónleikar Raddbandafélags Reykjavíkur
Yfirskrift vortónleika Raddbandafélags Reykjavíkur í ár er „Gull af mönnum“ – og er það engin tilviljun.
Á dagskránni verða nokkur lög sem við tileinkum minningu hins dáða söngvara Björgvins Halldórssonar. Eitt þeirra hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá kórnum og á sérstakan stað í hjörtum okkar, lagið Gullvagninn.
Dagskráin verður að vanda fjölbreytt og stútfull af ýmsum gullmolum. Þar má finna allt frá Bítlalögum og rífandi Bond-stemningu yfir í sjómannasöngva, klassíska karlakóratónlist, barbershop og auðvitað okkar einkennandi húmor.
Raddbandafélagar mæta fullir tilhlökkunar til leiks og hlakka til að eiga gullslegna og eftirminnilega stund með ykkur í Háteigskirkju á þessum hátíðisdegi.
Píanó: Kári Allansson
Þverflauta: María Sigurðardóttir
Stjórnandi: Egill Gunnarsson
Verið hjartanlega velkomin á vortónleika Raddbandafélags Reykjavíkur.

