Hans & Gréta // ópera

Listaháskólinn Laugarnesi

8. - 9. maí

Miðaverð frá

0 kr.

Söngnemendur Listaháskóla Íslands sýna óperuna Hans og Grétu eftir tónskáldið Engelbert Humperdinck þann 8. maí kl.20 og 9. maí kl.15 í stóra Black Boxinu í  húsnæði Listaháskóla Íslands í Laugarnesi. Gengið er inn fyrir ofan hús, frá malarbílastæðinu.

Óperan Hans og Gréta er byggð á hinu þekkta Grimmsævintýri um tvö systkin sem villast í skóginum og lenda í klóm vondrar nornar sem lokkar börn til sín með húsi úr kökum og sælgæti. Með hugrekki og snarræði tekst systkinunum að sigra nornina og frelsa öll börnin sem hún hafði fangað.

Alls 13 nemendur hafa unnið að uppsetningunni í vetur undir leiðsögn Önnu Maríu Tómasdóttur og Matthildar Önnu Gísladóttur, ásamt söngkennurum deildarinnar.

Söngnemendur Listaháskóli Íslands hafa á undanförnum árum staðið að fjölbreyttum og metnaðarfullum óperusýningum og þannig fengið dýrmætt tækifæri til að takast á við bæði stærri og smærri hlutverk og kynnast fjölbreyttum stílum óperulistformsins.


Þáttakendur sýningarinnar eru eftirfarandi:

Jón Ólafur Hannesson -  ljós og tækni

Anna María Tómasdóttir - leikstjóri

Matthildur Anna Gísladóttir - píanóleikur, tónlistarstjórn, óperucoach

Anna Elísa Axelsdóttir - Hans

Beinta Ingeborg Greve - Gréta

Freyja Jónsdóttir - Norn

Guðný Alma Haraldsdóttir - Hans

Guðný Guðmundsdóttir - Mamma

Guðrún Margrét Halldórsdóttir - Hans

Helena Hjörvar - Óli lokbrá

Katla Kristjánsdóttir - Gréta

Lára Ruth Clausen - Gréta

Oddný Þórarinsdóttir - Hans

Orri Jónsson - Norn

Ólafur Sverrir Traustason - Pabbi

Sólrún Sigurjónsdóttir - Gréta

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger