© 2026 Tix Ticketing
Listaháskólinn Laugarnesi
•
8. - May 9
Ticket prices from
ISK 0




Söngnemendur Listaháskóla Íslands sýna óperuna Hans og Grétu eftir tónskáldið Engelbert Humperdinck þann 8. maí kl.20 og 9. maí kl.15 í stóra Black Boxinu í húsnæði Listaháskóla Íslands í Laugarnesi. Gengið er inn fyrir ofan hús, frá malarbílastæðinu.
Óperan Hans og Gréta er byggð á hinu þekkta Grimmsævintýri um tvö systkin sem villast í skóginum og lenda í klóm vondrar nornar sem lokkar börn til sín með húsi úr kökum og sælgæti. Með hugrekki og snarræði tekst systkinunum að sigra nornina og frelsa öll börnin sem hún hafði fangað.
Alls 13 nemendur hafa unnið að uppsetningunni í vetur undir leiðsögn Önnu Maríu Tómasdóttur og Matthildar Önnu Gísladóttur, ásamt söngkennurum deildarinnar.
Söngnemendur Listaháskóli Íslands hafa á undanförnum árum staðið að fjölbreyttum og metnaðarfullum óperusýningum og þannig fengið dýrmætt tækifæri til að takast á við bæði stærri og smærri hlutverk og kynnast fjölbreyttum stílum óperulistformsins.
Þáttakendur sýningarinnar eru eftirfarandi:
Jón Ólafur Hannesson - ljós og tækni
Anna María Tómasdóttir - leikstjóri
Matthildur Anna Gísladóttir - píanóleikur, tónlistarstjórn, óperucoach
Anna Elísa Axelsdóttir - Hans
Beinta Ingeborg Greve - Gréta
Freyja Jónsdóttir - Norn
Guðný Alma Haraldsdóttir - Hans
Guðný Guðmundsdóttir - Mamma
Guðrún Margrét Halldórsdóttir - Hans
Helena Hjörvar - Óli lokbrá
Katla Kristjánsdóttir - Gréta
Lára Ruth Clausen - Gréta
Oddný Þórarinsdóttir - Hans
Orri Jónsson - Norn
Ólafur Sverrir Traustason - Pabbi
Sólrún Sigurjónsdóttir - Gréta

