Gosi

Frumleikhúsið

22. - 29. maí

Sala hefst

8. maí 2026, 10:00

(eftir 2 daga)

Gosi

Söngleikurinn Gosi er stórskemmtileg og litrík fjölskyldusýning um trébrúðuna Gosa sem þráir að verða alvöru drengur. Í leit sinni að leið til að láta þann draum rætast lendir hann, ásamt vini sínum Tuma Engisprettu, í alls kyns ævintýrum og freistingum, kynnist mörgum skrautlegum persónum og lærir mikilvæga lexíu um gildi heiðarleika, hugrekkis og vináttu. Sýningin, sem er hentug skemmtun fyrir alla aldurshópa, er ævintýraleg upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Leikarar sýningarinnar eru börn á aldrinum 7 - 17 ára og eru þau öll nemendur í Professional Prógrammi Ungleikhússins. Hér eru miklir snillingar á ferð sem láta söguna um Gosa, í leikgerð Karls Ágúst Úlfssonar með dásamlegu og ævintýralegu tónlistinni eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson, lifna við á einstakan og fagmannlegan hátt.

  • Leikstjóri - Sigga Ósk

  • Danshöfundur - Elma Rún Kristinsdóttir

  • Söngþjálfari - Diljá Pétursdóttir

  • Leikmynd - Davíð Örn Óskarsson

  • Lýsing - Sigurður Bogi Ólafsson

  • Leikgervi - Eva Björg Harðardóttir

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger