© 2026 Tix Ticketing
Frumleikhúsið
•
22. - May 29
Sale starts
May 8, 2026, 10:00 AM
(in 2 days)




Gosi
Söngleikurinn Gosi er stórskemmtileg og litrík fjölskyldusýning um trébrúðuna Gosa sem þráir að verða alvöru drengur. Í leit sinni að leið til að láta þann draum rætast lendir hann, ásamt vini sínum Tuma Engisprettu, í alls kyns ævintýrum og freistingum, kynnist mörgum skrautlegum persónum og lærir mikilvæga lexíu um gildi heiðarleika, hugrekkis og vináttu. Sýningin, sem er hentug skemmtun fyrir alla aldurshópa, er ævintýraleg upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Leikarar sýningarinnar eru börn á aldrinum 7 - 17 ára og eru þau öll nemendur í Professional Prógrammi Ungleikhússins. Hér eru miklir snillingar á ferð sem láta söguna um Gosa, í leikgerð Karls Ágúst Úlfssonar með dásamlegu og ævintýralegu tónlistinni eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson, lifna við á einstakan og fagmannlegan hátt.
Leikstjóri - Sigga Ósk
Danshöfundur - Elma Rún Kristinsdóttir
Söngþjálfari - Diljá Pétursdóttir
Leikmynd - Davíð Örn Óskarsson
Lýsing - Sigurður Bogi Ólafsson
Leikgervi - Eva Björg Harðardóttir

