© 2026 Tix Miðasala
Langholtskirkja
•
23. maí
Sala hefst
1. maí 2026, 08:00
(eftir 54 mínútur)




Útgáfutónleikar Kammerkórsins Huldur
Í tilefni af útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, Í fossgljúfri, býður Kammerkórinn Huldur öll velkomin á stórtónleika í Langholtskirkju 23. maí klukkan 14:00. Kórinn mun flytja dagskrá stútfulla af nýrri íslenskri kórtónlist sem nánast öll hefur verið samin af tónskáldum í kórnum og fyrir kórinn. Ekki verður einungis boðið upp á ljúfa tóna því gert verður stutt hlé á tónleikunum þar sem gestir geta fengið sér kaffibolla og aðrar léttar veitingar að kostnaðarlausu í safnaðarheimili kirkjunnar.
Við hvetjum öll til að mæta á þessa tónlistarveislu og fagna með okkur útgáfu plötunnar!
Hlökkum til að sjá sem flesta!

