Birtingar í brennidepli: Hvert fer auglýsingaféð – og hvaða áhrif hefur það?

Gróska

7. maí

Sala hefst

28. apríl 2026, 15:00

(eftir 26 mínútur)

Birtingar í brennidepli: Hvert fer auglýsingaféð – og hvaða áhrif hefur það?

ÍMARK boðar til morgunfundar í Grósku þann 7. maí þar sem birtingar og þróun þeirra verða teknar til umræðu.

Markmið fundarins er að taka opið og heiðarlegt samtal um hvert íslenskt auglýsingafé er að fara og hvaða áhrif sú þróun hefur á íslenska miðla, auglýsendur og markaðsumhverfið í heild. Á tímum hraðra breytinga, aukinnar sjálfvirkni og nýrra dreifileiða er ljóst að landslag birtinga er að taka miklum breytingum.

Á fundinum verða tvö pallborð. Í því fyrra verður sjónum beint að íslenskum og hefðbundnum miðlum -  stöðu þeirra í dag og framtíðarhlutverki. Í því síðara verður fjallað um stýringu birtinga, breytt hlutverk gagna og tækni, og hvernig ákvarðanataka í markaðsmálum er að þróast.

Fundurinn er vettvangur fyrir ólík sjónarmið og opna umræðu. 

Lykilaðilar í íslensku markaðsumhverfi taka þátt í pallborðsumræðunum:

Pallborð I – Hefðbundnir / íslenskir miðlar

  • Einar Logi Vignisson - RÚV

  • Silja Jóhannesdóttir - Morgunblaðið / mbl.is

  • Kári Jónsson -  Síminn

  • Guðmundur Halldór Björnsson - SÝN

Pallborð II – Stýring markaðsmála

  • Anna Fríða Gísladóttir - Nói Siríus

  • Ívar Gestsson - Birtingahúsið

  • Andri Már Kristinsson -  Digido

  • Jóhannes Karl Sigursteinsson - ENNEMM (Fyrir hönd SÍA)

 

DAGSKRÁ

  • Setning og inngangur fundarstjóra

  • Pallborð I -  Hefðbundnir / íslenskir miðlar

  • Pallborð II - Stýring markaðsmála

  • Spurningar úr sal og lokaorð

 

Húsið opnar kl. 08:30 með kaffi og morgunveitingum.
Fundur stendur frá kl. 09:00-10:30.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger