© 2026 Tix Ticketing
Gróska
•
May 7
Ticket prices from
ISK 1,990




Birtingar í brennidepli: Hvert fer auglýsingaféð – og hvaða áhrif hefur það?
ÍMARK boðar til morgunfundar í Grósku þann 7. maí þar sem birtingar og þróun þeirra verða teknar til umræðu.
Markmið fundarins er að taka opið og heiðarlegt samtal um hvert íslenskt auglýsingafé er að fara og hvaða áhrif sú þróun hefur á íslenska miðla, auglýsendur og markaðsumhverfið í heild. Á tímum hraðra breytinga, aukinnar sjálfvirkni og nýrra dreifileiða er ljóst að landslag birtinga er að taka miklum breytingum.
Á fundinum verða tvö pallborð. Í því fyrra verður sjónum beint að íslenskum og hefðbundnum miðlum - stöðu þeirra í dag og framtíðarhlutverki. Í því síðara verður fjallað um stýringu birtinga, breytt hlutverk gagna og tækni, og hvernig ákvarðanataka í markaðsmálum er að þróast.
Fundurinn er vettvangur fyrir ólík sjónarmið og opna umræðu.
Lykilaðilar í íslensku markaðsumhverfi taka þátt í pallborðsumræðunum:
Pallborð I – Hefðbundnir / íslenskir miðlar
Einar Logi Vignisson - RÚV
Silja Jóhannesdóttir - Morgunblaðið / mbl.is
Kári Jónsson - Síminn
Guðmundur Halldór Björnsson - SÝN
Pallborð II – Stýring markaðsmála
Anna Fríða Gísladóttir - Nói Siríus
Ívar Gestsson - Birtingahúsið
Andri Már Kristinsson - Digido
Jóhannes Karl Sigursteinsson - ENNEMM (Fyrir hönd SÍA)
DAGSKRÁ
Setning og inngangur fundarstjóra
Pallborð I - Hefðbundnir / íslenskir miðlar
Pallborð II - Stýring markaðsmála
Spurningar úr sal og lokaorð
Húsið opnar kl. 08:30 með kaffi og morgunveitingum.
Fundur stendur frá kl. 09:00-10:30.

