Aukin afköst með Claude gervigreindartóli

18. maí

Miðaverð frá

59.900 kr.

Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.

Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.

Félagar FKA, UAK, Vertonet og KÍÓ fá 10% afslátt

 

Hvernig viltu verja tímanum þínum? Láttu Claude gera leiðinlegu verkefnin svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Við skoðum af hverju fólk er að færa sig yfir í Claude, hvernig við hættum að nota gervigreind sem leitarvél og byrjum að láta hana vinna fyrir okkur.

 

Fyrir hverja?

Stjórnendur, markaðsfólk, frumkvöðla, verkefnastjóra og alla þá sem sinna fjölbreyttum störfum og vilja spara tíma með því að læra á nýja tækni.

 

Á námskeiðinu munu þátttakendur læra

  • Hvernig gervigreind virkar

  • Hvernig er best að nota Claude

  • Hvernig við látum gervigreind vinna fyrir okkur með Claude

  • Hvernig á að byggja samhengisskrá

 

Dagskrá

Dagur 1: Skilningur og samskipti

Við förum yfir hvernig gervigreind virkar, hvað samhengi þýðir og hvernig hægt er að ná sem bestum árangri með henni

 

Dagur 2: Samhengisskrá

Við förum yfir hvernig maður færir sig úr því að nota gervigreind sem leitarvél í að láta gervigreindina vinna fyrir sig.

 

Um kennarann

Þórdís Jóna Ingigerðardóttir er tölvunarfræðingur, frumkvöðull og stofnandi Revera. Hún hefur starfað í hugbúnaðargeiranum í áratug og leitar stöðugt leiða til að auka skilvirkni. Á námskeiðinu kennir hún það sem hún hefur lært af því að vinna með gervigreind.

 

Aðrar upplýsingar

Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.

Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.

Félagar FKA, UAK, Vertonet og KÍÓ fá 10% afslátt

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger