© 2026 Tix Ticketing
•
May 18
Ticket prices from
ISK 59,900




Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.
Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.
Félagar FKA, UAK, Vertonet og KÍÓ fá 10% afslátt
Hvernig viltu verja tímanum þínum? Láttu Claude gera leiðinlegu verkefnin svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Við skoðum af hverju fólk er að færa sig yfir í Claude, hvernig við hættum að nota gervigreind sem leitarvél og byrjum að láta hana vinna fyrir okkur.
Fyrir hverja?
Stjórnendur, markaðsfólk, frumkvöðla, verkefnastjóra og alla þá sem sinna fjölbreyttum störfum og vilja spara tíma með því að læra á nýja tækni.
Á námskeiðinu munu þátttakendur læra
Hvernig gervigreind virkar
Hvernig er best að nota Claude
Hvernig við látum gervigreind vinna fyrir okkur með Claude
Hvernig á að byggja samhengisskrá
Dagskrá
Dagur 1: Skilningur og samskipti
Við förum yfir hvernig gervigreind virkar, hvað samhengi þýðir og hvernig hægt er að ná sem bestum árangri með henni
Dagur 2: Samhengisskrá
Við förum yfir hvernig maður færir sig úr því að nota gervigreind sem leitarvél í að láta gervigreindina vinna fyrir sig.
Um kennarann
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir er tölvunarfræðingur, frumkvöðull og stofnandi Revera. Hún hefur starfað í hugbúnaðargeiranum í áratug og leitar stöðugt leiða til að auka skilvirkni. Á námskeiðinu kennir hún það sem hún hefur lært af því að vinna með gervigreind.
Aðrar upplýsingar
Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.
Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.
Félagar FKA, UAK, Vertonet og KÍÓ fá 10% afslátt

