Páskatúr Bríetar

Margar staðsetningar

4 viðburðir

Miðaverð frá

4.990 kr.

Páskatúr Bríetar

Rétt fyrir páska leggur BRÍET land undir fót ásamt hljómborðsleikaranum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni og trommaranum Bergi Einari Dagbjartssyni. Ferðalagið hefst í Borgarnesi og liggur vestur, þar sem hún kemur við á Dalíu í Búðardal og Verbúðinni á Patreksfirði. Hún endar svo á Vagninum, Flateyri, á föstudeginum langa með miðnæturtónleikum – páskahefð sem BRÍET hefur skapað þar í gegnum árin.

Á tónleikaferðalaginu má búast við einstaka tónlistarupplifun þar sem hún flytur vinsælustu lög sín ásamt nýju efni. Það má búast við mikilli nánd, stemningu og sterkri sviðsframkomu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger