© 2026 Tix Miðasala
Iceland Parliament Hotel
•
13. maí
Miðaverð frá
35.920 kr.




AI Summit Iceland 2026
Eftir fyrstu ár gervigreindarbyltingarinnar er kominn tími til að færa áhersluna frá tilraunastarfsemi yfir í skýra framtíðarsýn og markvissar ákvarðanir. Á AI Summit 2026 sýnum við hvernig hugmyndir um nýtingu gervigreindar verða að hagnýtum lausnum sem styðja við dagleg viðfangsefni og skapa raunverulegt virði til lengri tíma.
Alþjóðlegir fyrirlesarar frá nokkrum stærstu upplýsingatæknifyrirtækjum heims mæta til Íslands af þessu tilefni, þar á meðal fulltrúar frá Amazon, Google og Microsoft. Jafnframt munu leiðtogar úr íslensku atvinnulífi stíga á stokk og kynna raunveruleg dæmi og lærdóm af verkefnum sem hafa skilað ávinningi.
Ráðstefnan er heilsdagsviðburður sem fer fram á Parliament-hótelinu við Austurvöll. Boðið verður upp á morgunkaffi, hádegisverð og síðdegishressingu, auk tengslaviðburðar í Gamla Kvennaskólanum í dagslok.
Markmið viðburðarins er að veita gestum hagnýta innsýn í hvernig gervigreindarlausnum er beitt til að auka afköst, bæta vinnuferla og styðja við mannauð. Fjallað verður um hvað skiptir máli við fjárfestingar á þessu sviði, hvaða verkefni hafa skilað arðsemi og hvernig hægt er að vinna með gögn á ábyrgan hátt, með öryggi og persónuvernd að leiðarljósi.
Almenni verðflokkurinn er 44.900 kr en 20% early bird afslátturinn er virkur til og með 15. mars.

