© 2026 Tix Miðasala
Austurbæjarbíó
•
29. apríl




Ok, bye 2026
Ok, bye er einn umtalaðasti viðburður hér á landi og fer fram sem hluti af Iceland Innovation Week 29. apríl. Þetta eina kvöld koma frumkvöðlar, fjárfestar, stjórnmálafólk og listafólk saman í Austurbæjarbíói þar sem list, nýsköpun og loftslagsmál mætast í óhefðbundinni sviðsuppsetningu. Markmiðið er að varpa ljósi á helstu strauma og stefnur í sjálfbærni og loftslagsmálum og þau öfl sem eru þegar farin að móta framtíðina.
Ok, bye er veisla fyrir augu og eyru. Viðburðurinn er ekki hefðbundin ráðstefna heldur loftslagsleikhús, þar sem fyrirlestrar og samtöl fléttast saman við listrænar uppákomur, tónlist og sjónræna upplifun. Hér mætast TEDx og Broadway í upplifun sem er jafn hugræn og hún er sjónræn.
Markmið Ok, bye er skýrt: að horfa fram á við. Dagskráin fjallar um þær róttæku breytingar sem eru óhjákvæmilegar út frá lausnamiðuðu sjónarhorni. Á svið stíga leiðtogar, frumkvöðlar og fjárfestar sem hugsa stórt, framkvæma hratt og eru þegar að umbreyta kerfum.
Í ár er Ok, bye tileinkað þemanu Future of Food. Í eina kvöldstund breytist Austurbæjarbíó í svið framtíðarinnar, þar sem matur, tækni, fjármagn og nýsköpun takast á við sameiginlegt verkefni: að endurhugsa hvernig við nærum heiminn.
Meðal umfjöllunarefna eru fæðuöryggi og fæðukerfi, fjárfestingar í matvælatækni og frumkvöðlalausnir sem eru þegar farnar að umbreyta matvælaframleiðslu og neyslu. Fyrirlestrar, samtöl, tónlist og sjónræn upplifun fléttast saman í öflugt sjónarspil fyrir augu og eyru, þar sem fortíð og framtíð mætast og nýjar leiðir verða sýnilegar.
Ok, bye er unnið í samstarfi við Climeworks Iceland
Listrænt teymi
Handrit og leikstjórn: Katie Hitchcock og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Halldór Eldjárn
Gestgjafi kvöldsins: Stefán Þór Þorgeirsson
Dansarar: Sally Cowdin, Ellen Margrét Bæhrenz, Anna Guðrún Tómasdóttir, Bjartey Elín Hauksdóttir og Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar: Sigríður Ágústa Finnbogadóttir
Fram koma
Hanna Katrín Friðriksson Atvinnuvegaráðherra
Þór Sigfússon Stofnandi, Íslenski Sjávarklasinn
Andy Mann, framleiðandi og leikstjóri, SeaLegacy
Jennifer Bushman Meðstofnandi og stjórnandi, Fed By Blue
Arnout Dijkhuizen, AgriFood Principal, Rockstart
Chef Steph frá Nihkhah
Ragne Maasel, Head of Impact, Oysterbay Capital
Laura Sinisalo, markaðsstjóri Solar Foods
Mark Post Meðstofnandi og aðalvísindamaður Mosa Meat
Eric Archambeau Stofnandi og stjórnandi Astanor Capital
Werner Grub, Forstöðumaður fjárfestingaverkefna hjá EIFO
Maria Smith, General Secretary hjá Ax Foundation
Ásdís Eva Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Arctic Circle

