© 2025 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
13. - 21. febrúar
Miðaverð frá
8.900 kr.
Kammeróperan snýr aftur í Tjarnarbíó með eina af vinsælustu óperum sögunnar í glænýjum búning.
Stolt, ástríða og afbrýðisemi eru rauði þráðurinn í Carmen eftir Georges Bizet.
Don José, ungur skyldurækinn hermaður, verður hugfanginn af hinni heillandi og óútreiknanlegu Carmen.
Svo ákaft brennur hjarta hans af þrá að ekkert getur stöðvað hann í að hlaupast á brott með henni – ekki einu sinni æskuástin Michaëla.
Don José kastar lífi sínu á glæ fyrir spennu og óvissu, en brigðul er kvenna ást.
Escamillo, heimsfrægur nautabani, rennur einnig hýru auga til Carmen – og þá vandast málin.
Sviðið er klárt og rómantísk ástarsagan stefnir óumflýjanlega í hryllilegan harmleik.
Kammeróperan, sem hefur fyrir löngu sannað sig sem einn kraftmesti óperuhópur landsins, heldur nýstárlegri yfirferð sinni á klassíkinni áfram og flytur Carmen á íslensku í nýrri útsetningu sem er einungis ætluð fjórum söngvurum og einum leikara.
Adolf Smári Unnarsson leikstýrir og þýðir textann en hann hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir óperuverkefni sín á borð við BRÍM og Ekkert er sorglegra en manneskjan.
Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara – sjáðu sígilda tónlistina vakna til lífsins í spennandi, eggjandi og átakamikilli uppfærslu.
Carmen er styrkt af Sviðslistasjóði
Hlutverk
Carmen – Kristín Sveinsdóttir
Don José – Eggert Reginn Kjartansson
Escamillo – Unnsteinn Árnason
Michaëla – Jóna G. Kolbrúnardóttir
Hljómsveit
Una Sveinbjarnardóttir – fiðla
Flemming Valmundsson – harmonika
kontrabassi
Listrænt teymi
Leikstjórn og þýðing: Adolf Smári Unnarsson
Leikmynd og búningar: Andri Hrafn Unnarson
Ljós: Fjölnir Gíslason
Hár og förðun: Íris Sveinsdóttir
Ljósmyndir: Sandijs Rukluks
Grafísk hönnun: Gunnar Ólafsson
Framleiðsla: Kammeróperan