Fjölskyldudagskrá Hörpu: Krakka-Kammermúsíkklúbburinn

Harpa

12. apríl

Krakka-Kammermúsíkklúbburinn

  •  12. apríl kl. 14:00–15:00 

  •  Kaldalón, Harpa 

  •  Aldur: 7–15 ára 

  •  Tungumál: Íslenska (auðvelt að njóta óháð tungumáli) 

  •  Aðgangur: Ókeypis – miða má nálgast frá 6. apríl á harpa.is 

Fjölskyldudagskrá Hörpu, í samstarfi við Kammermúsíkklúbbinn og Menntaskóla í tónlist, býður upp á notalega kammertónleika í Kaldalóni þar sem ungir og efnilegir hljóðfæraleikarar stíga á svið og flytja fjölbreytta og aðgengilega efnisskrá.

Áheyrendur fá jafnframt innsýn í heim kammertónlistarinnar með fróðleik um hljóðfærin, tónskáldin og tónlistarstílinn – með það að markmiði að dýpka skilning og auka áhuga ungra hlustenda.

Efnisskrá:

M. Ravel:
Strengjakvartett í F-dúr, 2. kafli: Assez vif - Tres rythmé

Björney Aronsdóttir, fiðla
Steinunn Dís Öfjörð Sævarsdóttir, fiðla
Haraldur Áss Liljuson, víóla
Urður Eir Baldursdóttir, selló

F. Mendelssohn:
Píanótríó í d-moll op. 49, 1. kafli: Molto allegro agitato

Sveindís Eir Steinunnardóttir, fiðla
Baldur Þórarinsson, selló
Sól Björnsdóttir, píanó

A. Dvorak:
Terzetto í C-dúr, 1.kafli: Allegro ma non troppo

Rozalia Mietus, fiðla
Hugrún Birna Hjaltadóttir, fiðla
Arndís Ólafía Snorradóttir, víóla

D. Shostakovich:
Píanótríó í e-moll op.67, 4. kafli: Allegretto-Adagio

Þórdís Emiliía Aronsdóttir, fiðla
Anton Ragnar Vigfússon, selló
Jakob Piotr Grybos, píanó

Allir flytjendur eru nemendur við Menntaskóla í tónlist.

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger