© 2025 Tix Miðasala
Margar staðsetningar
•
15. - 16. ágúst
Miðaverð frá
3.500 kr.
Berjadagar tónlistarhátíð 2025
Föstudagur 11:00-11:30 morgunstund í Ólafsfjarðarkirkju
'Bach í bítið'
Ólöf Sigursveinsdóttir barokkselló
Að tónlistarflutningi loknum bíður norðlensk, heimabökuð ostakaka og kaffibolli númer tvö í safnaðarheimiliinu.
Föstudag 19:00-20:30 í sal Brimsala við Námuveg 8
‘Hafgúa, marfólk og dísir’
Flygill Jóns Þorsteinssonar (1951-2024) vígður í nýju rými.
Fjöldasöngur og gleði við völd! Byrjað með fyrra fallinu því Ída Semey býður uppá súpu fyrir gesti.
Tónskáld kvöldsins Gaspar Cassado, Edvard Grieg, Carl Nielsen, Árni Thorsteins o.fl
Fram koma: Sellósveitin Sólstafir, Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir selló, Ásdís Arnardóttir, selló, Hrafn Heiðar Guðmundsson selló og Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Sigursveinn Magnússon píanó og Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran
Laugardagur 20:00-21:15 Ólafsfjarðarkirkja
‘Nonnakvöld’
Elmar Gilbertsson syngur sig inní hjörtun og leikur sér með hin ýmsu viðfangsefni söngljóðsins. Elmar er gestum hátíðarinnar að góðu kunnur því hann kom og söng Alfredo í La Traviata eftir Verdi í tónleikahúsi Ólafsfirðinga árið 2019. Þar söng hann á móti Sigrúnu Pálmadóttur sópransöngkonu! Kvöldið er helgað minningu Nonna eða Jóns Þosteinssonar og er ný hefð á Berjadögum. Elmar var nemandi Nonna og þekkir Ólafjsfjörð vel.
Hann hefur verið söngvari við ríkisóperuna í Stuttgart í Þýskalandi síðustu árin. Það mætti með sanni segja að hann hafi komið, séð og sigrað þar á bæ og því eru allir hvattir til að leggja leið sína í kirkjuna til að hlíða á söng og leik þeirra félaga. Á þessum tónleikum hljómar einnig sellókonsert eftir Edvard Elgar sem er eitt af höfuðtónsmíðum tónlistarsögunnar fyrir selló og sinfóníuhljómsveit.
Elmar Gilbertsson tenór, Einar Bjartur Egilsson píanó, Ólöf Sigursveinsdóttir selló