Berjadagar tónlistarhátíð 2025

Many venues

15. - 16 August

Ticket prices from

ISK 3,500

Berjadagar tónlistarhátíð 2025

Föstudagur 11:00-11:30 morgunstund í Ólafsfjarðarkirkju

'Bach í bítið'

Ólöf Sigursveinsdóttir barokkselló

Að tónlistarflutningi loknum bíður norðlensk, heimabökuð ostakaka og kaffibolli númer tvö í safnaðarheimiliinu.

Föstudag 19:00-20:30 í sal Brimsala við Námuveg 8

‘Hafgúa, marfólk og dísir’

Flygill Jóns Þorsteinssonar (1951-2024) vígður í nýju rými.

Fjöldasöngur og gleði við völd! Byrjað með fyrra fallinu því Ída Semey býður uppá súpu fyrir gesti.

Tónskáld kvöldsins Gaspar Cassado, Edvard Grieg, Carl Nielsen, Árni Thorsteins o.fl

Fram koma: Sellósveitin Sólstafir, Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir selló, Ásdís Arnardóttir, selló, Hrafn Heiðar Guðmundsson selló og Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Sigursveinn Magnússon píanó og Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran

Laugardagur 20:00-21:15 Ólafsfjarðarkirkja

‘Nonnakvöld’

Elmar Gilbertsson syngur sig inní hjörtun og leikur sér með hin ýmsu viðfangsefni söngljóðsins.  Elmar er gestum hátíðarinnar að góðu kunnur því hann kom og söng Alfredo í La Traviata eftir Verdi í tónleikahúsi Ólafsfirðinga árið 2019. Þar söng hann á móti Sigrúnu Pálmadóttur sópransöngkonu! Kvöldið er helgað minningu Nonna eða Jóns Þosteinssonar og er ný hefð á Berjadögum. Elmar var nemandi Nonna og þekkir Ólafjsfjörð vel.

Hann hefur verið söngvari við ríkisóperuna í Stuttgart í Þýskalandi síðustu árin. Það mætti með sanni segja að hann hafi komið, séð og sigrað þar á bæ og því eru allir hvattir til að leggja leið sína í kirkjuna til að hlíða á söng og leik þeirra félaga. Á þessum tónleikum hljómar einnig sellókonsert eftir Edvard Elgar sem er eitt af höfuðtónsmíðum tónlistarsögunnar fyrir selló og sinfóníuhljómsveit.

 Elmar Gilbertsson tenór, Einar Bjartur Egilsson píanó, Ólöf Sigursveinsdóttir selló

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger