Heimatónleikar á Ljósanótt 2025

Reykjanesbær

5. september

Miðaverð frá

4.900 kr.

Heimatónleikar í Gamla bænum verða á Ljósanótt, föstudagskvöldið 5. september, og er það í níunda skiptið sem þessi vinsæli viðburður fer fram.

Búið er að ráða frábæra listamenn sem koma fram á nokkrum heimilum í Reykjanesbæ og spila fyrir almenning ýmist úti á palli eða inni í stofu gestgjafanna.

Tónleikarnir hefjast í öllum húsunum kl. 21.00 og verða endurteknir kl. 22.00. Fólk gengur á milli húsa og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi fyrir utan hvað það skapast alltaf skemmtileg stemning í húsunum.

Miðasala á tónleikana hefst föstudaginn 8. ágúst kl. 10:00 á Tix.is og armböndin verða afhent í Geimsteini, Skólavegi 12, fimmtudag 4. sept og föstudag 5. sept milli kl. 17 - 19.

Listafólkið sem kemur fram í ár er eftirfarandi: Góss, BlazRoca, Helgi Björnsson, Eyþór Ingi og Rúnar Júl 80 ára heiðurstónleikar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger