Októberfest Mývatn öl

Mývatn

31. október

Miðaverð frá

8.490 kr.

Októberfest Mývatn öl 2025!

Helgina 31. Október og 1.nóvember verður haldin fyrsta októberfest Mývatn öl á Sel-Hótel Mývatni. Þessa helgi mun hótelið breytist í líflega og litríka lederhosen bjórhátíð þar sem bjórinn rennur, tónlistin ómar og gleðin ræður ríkjum. Þetta er sannkölluð bjórhátíð í anda Bæjaralands með einstöku íslensku ívafi. Fjölmörg brugghús víðsvegar af landinu mæta með úrval af sínum bestu handverksbjórum, allt frá klassískum lagerum til sérlega frumlegra og bragðmikilla brugga.

Lykilpunktar:

  •  Úrval af handverksbjórum frá bestu brugghúsum landsins

  •  Lifandi þýsk þjóðlaga tónlist á föstudagskvöldinu og heimamaðurinn Stebbi Jak á laugardagskvöldinu

  •  Ljúffengur matur í anda klassískrar þýskrar Oktoberfest stemningar með einstöku íslensku ívafi

  •  Hátíðarsalur skreyttur í sannkölluðum Oktoberfest-stíl

  •  Hvetjum gesti til að mæta í þýskum búningum – verðlaun fyrir besta dressið!

Októberfest Mývatn Öl 2025 verður ógleymanleg helgi þar sem menning, matur og bjór mætast. Fjöldi miða er takmarkaður þannig tryggðu þér miða sem fyrst til að tryggja það að þú verður með þegar okkar fyrsta bjórhátíð fer fram á Sel-hótel Mývatn!

ATH: Það er ekki hægt að bóka bara gistingu þessa helgi, einungis er boðið upp á pakka sem inniheldur bæði hótelherbergi og aðgang að hátíðinni. Pakkana má bóka á: www.myvatn.is

Ef þið hafið einungis áhuga á að kaupa aðgang á októberfestið er það gert hér í gegnum TIX.

Hlökkum til að skála saman í haust!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger