Októberfest Mývatn öl

Mývatn

31 October

Ticket prices from

ISK 8,490

Mývatn Bierfest

Helgina 31. Október og 1.nóvember verður haldin fyrsta októberfest Mývatn öl á Sel-Hótel Mývatni.

Þessa helgi mun hótelið breytast í líflega og litríka lederhosen bjórhátíð þar sem bjórinn rennur, tónlistin ómar og gleðin ræður ríkjum. Þetta er sannkölluð bjórhátíð í anda Bæjaralands með einstöku íslensku ívafi. Fjölmörg brugghús víðsvegar af landinu mæta með úrval af sínum bestu handverksbjórum, allt frá klassískum lagerum til sérlega frumlegra og bragðmikilla brugga. 

Dagskrá og lykilpunktar:

Föstudagurinn 31. október

  • Á föstudagskvöldinu bjóðum við upp á pizzahlaðborð kl. 19:00–21:00. Verðið er 3.500 kr. á mann og þarf að panta borð sérstaklega með því að senda okkur tölvupóst á myvatn@myvatn.is.

  • Þýsk/austurrísk Oktoberfest-tónlist með Tríói Akureyrar og Ellu Völu, styrkt af Uppbyggingarsjóði SSNE kl. 21:00–23:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Laugardagurinn 1. nóvember

  • Úrval af handverksbjórum frá bestu brugghúsum landsins frá 16:00 - 20:00.

  • Ljúffengt kvöldverðarhlaðborð í anda klassískrar þýskrar Oktoberfest stemningar með einstöku íslensku ívafi.

  • Heimamaðurinn Stebbi Jak og Hafþór Valur halda stemningunni uppi frá 21:00 - 23:00.

  • Skemmtunin heldur áfram fram á nótt.

Aðrar upplýsingar

  • Hótelið fær alvöru Oktoberfest-útlit sem heldur vel utan um stemninguna.

  • Hótelið fær alvöru Oktoberfest-útlit sem heldur vel utan um stemninguna.

Upplýsingar um miðagerðir:

  • Dagspassi laugardag: Dagspassinn á laugardag inniheldur bjórsmakksarmband og aðgang að oktoberfest kvöldverðarhlaðborði með tilheyrandi skemmtun um kvöldið.

  • Bjórsmakk laugardag: Innifalið er aðgangur í bjórsmakk á föstudeginum 16:00 – 20:00.

ATH: Það er ekki hægt að bóka bara gistingu þessa helgi, einungis er boðið upp á pakka sem inniheldur bæði hótelherbergi og aðgang að hátíðinni. Pakkarnir eru bókanlegir hér: https://www.myvatn.is/oktoberfest-myvatn-ol-2025

Ef þið hafið einungis áhuga á að kaupa aðgang á októberfestið er það gert hér í gegnum TIX.

Hlökkum til að skála saman!

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger