Andrés Þór Tríó

Iðnó Jazz

14. september

Miðaverð frá

2.500 kr.

Gítarleikarinn og tónskáldið Andrés Þór stígur á svið með tríói sínu á tónleikaröðinni Jazz í Iðnó sunnudaginn 14. september kl. 20:00. Tríóið, sem hefur starfað saman frá árinu 2021, flytur frumsamda tónlist eftir Andrés þar sem lagrænar tónsmiðar, næmt samspil og spuni fá að njóta sín.

Þetta er kjörinn viðburður fyrir alla sem unna hnitmiðaðri og persónulegri nálgun á jazztónlist í hlýlegu umhverfi Iðnó.

Um tríóið

Tríó Andrésar Þórs var stofnað árið 2021 og sameinar þrjá tónlistarmenn sem deila næmri og persónulegri nálgun á spuna og samspil. Tónlist tríósins á sér rætur í jazzhefðinni en einkennist jafnframt af lýrískum tónsmíðum, lagrænni spunahugsun og opnu samtali milli hljóðfæraleikaranna.

Fyrsta plata tríósins, Hereby, kom út hjá norska útgáfufyrirtækinu Losen Records árið 2022 og hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda. Á plötunni eru níu frumsamin verk eftir Andrés þar sem gítartríóformið er nýtt til fulls—með áherslu á rými, dýnamík og tónrænt flæði sem heldur jafnvægi milli kyrrðar og spennu. Ný plata sem er sjálfstætt framhald Hereby er væntanleg á vegum Losen Records seint á árinu 2025 eða snemma árs 2026.

Tríóið hefur smám saman mótað sinn eigin hljóm þar sem hlýleiki, næmi og skýr tónhugsun eru kjarninn í tónsköpuninni. Tónlistin er náin og víðáttumikil— með djúpar rætur í jazztónlist, en þó opin fyrir ýmsum straumum.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger