múm – IA25 Partner Event

Harpa

9. nóvember

Sala hefst

27. júní 2025, 09:00

(eftir 3 daga)

ALMENN MIÐASALA HEFST 27. JÚNÍ KL. 9

FORSALA FYRIR IA MIÐAHAFA HEFST 26. JÚNÍ KL 9

10% AFSLÁTTUR FYRIR ALMENNA IA25 MIÐAHAFA

20% AFSLÁTTUR FYRIR PLUS IA25 MIÐAHAFA

Rúmlega áratugur er síðan múm gaf síðast út breiðskífu — en nú snúa þau aftur með History of Silence, dásamlega furðulega og glitrandi nýja plötu sem markar næsta kafla í síbreytilegu hljóðferðalagi þeirra. Platan kemur út í september og var sköpuð þvert yfir tímabelti, árstíðir og veðrabrigði — hún flæðir á milli hlýrra analóghljóða og stafræns ryks, með lögum sem glitra hljótt og sitja lengi í minningunni. Þetta eru múm í essinu sínu: brothætt en óhrædd, fáguð en djúp.

Til að fagna útgáfunni mun múm færa litskrúðuguðan hljóðheim sinn á sviðið í Eldborg, Hörpu — í einstakri og náinni tónleikaupplifun. Hún verður ofin saman úr strengjum, hljómborðum, þögn og óvæntum atriðum. Komdu með í kvöldstund þar sem allt leysist upp í draumi: bjagaðar vögguvísur, melódíur í mýkt og augnablik sem virðast stöðvuð í tíma. Treystu okkur — þetta eru ekki bara tónleikar, þetta er andrúmsloft.

Viðburðurinn er hluti af Iceland Airwaves 2025 sem sérstakur Partner Event. Miðahafar Iceland Airwaves fá forgang og afslátt, en tónleikarnir eru opnir öllum sem tryggja sér miða.

Sex verðflokkar eru í boði:

Úrvalssæti:    15.990 ISK    (fjólublátt á mynd)

Svæði 1:        14.990 ISK    (rautt á mynd)

Svæði 2:        12.990 ISK    (blátt á mynd)

Svæði 3:        9.990 ISK      (grænt á mynd)

Svæði 4:        7.990 ISK      (gult á mynd)

Svæði 5:        5.990 ISK      (bleikt á mynd)

Mynd af sal

Umsjón: Iceland Airwaves

MIÐAUPPLÝSINGAR

Athugið að þessi viðburður er ekki innifalinn í hátíðarpassa Iceland Airwaves, en sem miðahafi Iceland Airwaves geturðu fengið 10% afslátt af miðanum. Ef þú ert með Iceland Airwaves Plus miða áttu rétt á 20% afslætti. Miðahafar fá einnig aðgang að sérstökum forsölum þar sem afslættirnir gilda. Miðahafar Iceland Airwaves fá tölvupóst með hlekk á forsöluna og afsláttarmiða að morgni þess dags sem forsalan hefst. Þegar þú keyptir hátíðarpassa þinn eða Plus uppfærslu fékkstu staðfestingarpóst og skjal sent – þar er einnig að finna hlekk á þína persónulegu afslættarsíðu.

UM ICELAND AIRWAVES PARTNER EVENTS

Iceland Airwaves Partner Events eru viðburðir sem yfirleitt krefjast sérstakra miða og eru haldnir af eða í samstarfi við Iceland Airwaves. Allir geta keypt miða á þessa viðburði en miðahafar Iceland Airwaves greiða ávallt lægra miðaverð og/eða hafa forgang að miðasölu (miðahafar finna afsláttartengla í miðastaðfestingum sínum og sérstakur póstur er sendur á alla miðahafa þegar forsölur eiga sér stað). Ávallt má finna upptalningu allra Iceland Airwaves Partner Events og annara sérstakra viðburða tengdum Iceland Airwaves á: icelandairwaves.is/special.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger