© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
22. - 23. júlí
Miðaverð frá
4.900 kr.
Sigurdís Sandra Tryggvadóttir, píanó
Mariusz Prasniewski, bassi
Peter Horvath, trommur
Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Sandra Tryggvadóttir kemur nú heim til Íslands með evrópska tríóið sitt á fyrsta sinn. Sigurdís er búsett í Danmörku, þar sem hún hefur lokið mastersnámi í jazzpíanóleik og tónsmíðum frá Syddansk Musikkonservatorium.
Meðlimir triíósins eru pólski kontrabassaleikarinn Mariusz Prasniewski, einn eftirsóttasti tónlistarmaður dönsku jazzsenunnar og Peter Horvath frá Ungverjalandi, sem er þekktur fyrir mjúkan og lagrænan trommuleik. Á efnisskránni verða frumsamin verk Sigurdísar, en tónlist hennar hefur verið lýst sem mínimalískri og tregafullri, með skýrum laglínum og norrænum blæ. Einnig verða flutt sönglög eftir afabróður hennar, Jónas Tryggvason (1916-1983). Tónsmíðar Jónasar hafa lifað í karlakórshefð Norðvesturlands, en fá hér áframhaldandi líf í gegnum persónulega túlkun tríósins.