© 2025 Tix Miðasala
Hönnunarsafn íslands
•
24. janúar
Miðaverð frá
6.500 kr.
Vinnusmiðjan er ætluð öllum sem hafa áhuga á bókum, vönu bókagerðarfólki, hönnuðum, lestrarhestum og allt þar á milli.
Í vinnusmiðjunni Sjáðu! bækur verður lögð áhersla á að vinna með bækur á áþreifanlegan hátt. Þátttakendur fá að kynnast bókum með því að horfa, snerta og eiga við. Hver þátttakandi fær bók í hendur sem hann mun gaumgæfa, lýsa og síðan breyta, og um leið kanna hvernig litlar breytingar eins og að brjóta saman, skera eða fjarlægja geta umbreytt því hvernig maður upplifir hlut, og möguleikunum sem hann býður upp á.
Í vinnusmiðjunni verður áhersla á samtal hópsins og munu leiðbeinendur einnig bjóða upp á viðeigandi fræðslu um ákveðna tæknilega þætti hefðbundinnar og tilraunakenndar bókagerðar.
Efniviður og áhöld verður til staðar, en þátttakendum er velkomið að koma með verkfæri sem þeim þykir spennandi að nota.
Leiðbeinendur eru grafísku hönnuðirnir Jana Sofie Liebe og Una María Magnúsdóttir. Jana Sofie Liebe er svissneskur grafískur hönnuður með áherslu á bókahönnun. Hún lærði við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam og Zürcher Hochschule der Künste í Zurich og hlaut nýverið „Golden letter” verðlaunin fyrir bestu bókahönnun heims 2024. Una María Magnúsdóttir er grafískur hönnuður og lærði við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam. Báðar laðast þær að smáatriðum sem tilkomin eru vegna efnislegra sérkenna þeirra hráefna sem notuð eru við bókahönnun og í samstarfsverkefnum þeirra eru áþreifanlegir eiginleikar prentaðs efnis í aðalhlutverki.
Námskeiðið er haldið í tengslum við sýninguna Fallegustu bækur í heimi sem haldin er í Hönnunarsafni Íslands í samstarfi við Félag íslenskra teiknara og Stiftung Buckunst.