Stafræn markaðssetning fyrir netverslanir

Digido

12. febrúar

Miðaverð frá

59.990 kr.

Fyrir hverja?

Námskeiðið er hugsað fyrir netverslunareigendur, markaðsfólk, vefstjóra og frumkvöðla. Farið verður yfir stafræna markaðslandslagið með sérstakri áherslu á Meta ads og Google ads. Auglýsinganetin verða skoðuð út frá markmiðum netverslunna og hvernig hægt er að nýta þau til fullnustu með því að skilja gögnin sem þar má finna. Einnig verður farið yfir vefgreiningartólið Google Analytics 4 og hvernig það getur gagnast

netverslunum við að taka upplýstar ákvarðanir um hvaða markaðsaðgerðir virka og hverjar ekki.

Hvað verður farið yfir?

  • Yfirferð á stafrænum auglýsinganetum

  • Uppsetning á Meta ads og Google ads

  • Að meta árangur í ljósi gagna

  • Grunnþætti í leitarvélabestun

  • Mælikvarða sem skipta netverslanir mestu máli

Um kennara

Arnar Gunnarsson hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum

stærðargráðum. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í gagnadrifnum birtingum hjá Digido í 5 ár.

Birkir Árnason hefur aðstoðað fjölbreyttan hóp fyrirtækja í markaðsmálum síðastliðin fimm ár með sérstaka áherslu á gagnamiðaða markaðssetningu og mælingar.

Aðrar upplýsingar

Digido teymið hefur haldið yfir 100 námskeið í markaðssetningu.

Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.

Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger