© 2024 Tix Ticketing
Digido
•
12 February
Ticket prices from
ISK 59,990
Fyrir hverja?
Námskeiðið er hugsað fyrir netverslunareigendur, markaðsfólk, vefstjóra og frumkvöðla. Farið verður yfir stafræna markaðslandslagið með sérstakri áherslu á Meta ads og Google ads. Auglýsinganetin verða skoðuð út frá markmiðum netverslunna og hvernig hægt er að nýta þau til fullnustu með því að skilja gögnin sem þar má finna. Einnig verður farið yfir vefgreiningartólið Google Analytics 4 og hvernig það getur gagnast
netverslunum við að taka upplýstar ákvarðanir um hvaða markaðsaðgerðir virka og hverjar ekki.
Hvað verður farið yfir?
Yfirferð á stafrænum auglýsinganetum
Uppsetning á Meta ads og Google ads
Að meta árangur í ljósi gagna
Grunnþætti í leitarvélabestun
Mælikvarða sem skipta netverslanir mestu máli
Um kennara
Arnar Gunnarsson hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum
stærðargráðum. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í gagnadrifnum birtingum hjá Digido í 5 ár.
Birkir Árnason hefur aðstoðað fjölbreyttan hóp fyrirtækja í markaðsmálum síðastliðin fimm ár með sérstaka áherslu á gagnamiðaða markaðssetningu og mælingar.
Aðrar upplýsingar
Digido teymið hefur haldið yfir 100 námskeið í markaðssetningu.
Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.
Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.