Google ads 101

Digido

22. janúar

Athugið að námskeiðið er tveir dagar og fer kennsla fram 22. og 23. janúar frá 09:00 - 12:00.

Fyrir hverja?
Námskeiðið er tilvalið fyrir markaðsfólk, vefstjóra, fyrirtækjaeigendur, frumkvöðla og
alla þá sem vilja taka sín fyrstu skref með Google Ads.

Hvað verður farið yfir?

  • Uppsetningu, strúktúr og rekstur herferða í kostaðri leit, Google Display og YouTube

  • Hvernig uppboðskerfið virkar

  • Að velja leitarorð og setja upp árangursríkar auglýsingar í kostuðu leitinni

  • Miðunarmöguleika (e. targeting) á Google Display netinu og YouTube

  • Að meta árangur herferða

  • Nýjungar á auglýsinganeti Google

Umsagnir frá þátttakendum
„Þægileg og góð nálgun á efninu. Einfaldar mikið fyrstu skrefin.“
„Komið inn á helling af nýjum hlutum sem munu nýtast.“
„Mjög skýrt og kennarinn mjög hjálplegur.“
„Frábær kennari sem kom efninu vel frá sér.“
„Kennarinn kom efninu vel til skila á skipulagðan hátt.“

Um kennara
Arnar Gunnarsson hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum
stærðargráðum. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í gagnadrifnum birtingum hjá Digido í 5 ár.
Birkir Árnason hefur aðstoðað fjölbreyttan hóp fyrirtækja í markaðsmálum síðastliðin fimm ár
með sérstaka áherslu á gagnamiðaða markaðssetningu og mælingar. Arnar og Birkir hafa aðstoðað fyrirtæki á borð við Icelandair, Arion banka, Origo, Domino’s og Útilíf við að ná betri árangri í netmarkaðssetningu.

Aðrar upplýsingar
Digido teymið hefur haldið yfir 100 námskeið í markaðssetningu.
Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.
Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger