Aðventutónleikar Söngsveitarinnar Fílharmóníu

Langholtskirkja

7. desember

Árlegir aðventutónleikar Söngsveitarinnar Fílharmóníu verða í Langholtskirkju laugardaginn 7. desember kl. 17.00. Flutt verður fjölbreytt aðventu- og jólatónlist frá ýmsum tímum, m.a. frumflutt verkin Kveiki á einu kerti nú, eftir Þóru Marteinsdóttur og Allir litlir englar, eftir Tryggva M. Baldvinsson sem hann samdi sérstaklega fyrir Söngsveitina Fílharmóníu. Einsöngvari verður Íris Björk Gunnarsdóttir sópransöngkona og Elísabet Waage leikur á hörpu. Almennt miðaverð kr. 3500, öryrkjar og eldri borgarar kr. 2500, frítt fyrir 14 ára og yngri.

Söngsveitin Fílharmónía er 70 manna blandaður kór og hefur verið starfandi frá árinu 1960. Kórinn hefur flutt fjölbreytta tónlist frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar og heldur reglulega tónleika. Síðastliðið starfsár flutti kórinn Messu heilagrar Sesselju eftir Haydn ásamt einsöngvurum og hljómsveit við mikla hrifningu áheyrenda auk Stabat Mater eftir Antonín Dvorák og hlaut lof fyrir. Þann 22. mars n.k. mun kórinn flytja Heimsljós eftir Tryggva M. Baldvinsson sem hann samdi í tilefni af 50 ára afmæli kórsins og frumflutt var árið 2010. Kórinn hefur á undaförnum misserum unnið að hljóðritunum íslenskri kórtónlist og gefið út á helstu tónlistarstreymisveitum. Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson.

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger