Míkhaíl Búlgakov, Meistarinn og Margaríta – námskeið undir handleiðslu Gunnars Þorra

Hótel Holt

23. október

Miðaverð frá

44.500 kr.

Míkhaíl Búlgakov (1891–1940) fæddist í Úkraínu og lifði mikið umbrotaskeið á
stuttri en viðburðaríkri ævi: rússnesku byltinguna, stofnun Sovétríkjanna og
ógnarstjórn Stalíns. Búlgakov fluttist ungur til Moskvu þar sem hann skrifaði
skáldsögur og leikrit leiftrandi af húmor, ádeilu og hugmyndaauðgi.

Gunnar Þorri Pétursson hefur tvívegis hlotið íslensku þýðingaverðlaunin fyrir
þýðingar sínar á rússneskum bókmenntum, stýrt þáttaröðinni Rús sem sló
rækilega í gegn í Ríkisútvarpinu og haldið úti rómuðum námskeiðum í
glæsilegum salarkynnum Hótels Holts um jöfra rússneskra bókmennta:
Dostojevskí, Púshkín, Tsjekhov og fleiri.

Að þessu sinni mun Gunnar Þorri ljúka upp undraheimum Búlgakovs og
merkustu skáldsögu hans: Meistaranum og Margarítu. Djöfullinn mætir til
Sovétríkjanna og setur allt á annan endann í einhverri göldróttustu skáldsögu
samanlagðra heimsbókmenntanna, sprúðlandi meistaraverki sem fékkst ekki
útgefið á sínum tíma og sætir enn á ný ritskoðun í kjölfar innrásar Rússa í
Úkraínu.

Ástir, dulspeki, usli og máttur skáldskaparins. Það gerist varla betra.

Námskeiðið verður haldið fjögur miðvikudagskvöld (23. og 30. okt, 13. og 20.
nóv.) og er styrkhæft hjá mörgum stéttarfélögum.

Sætafjöldi takmarkaður.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger