Mánasilfur | Tíbrá

Salurinn

27. apríl

Miðaverð frá

3.900 kr.

Undursamleg kammertónlist eftir Claude Debussy, Clöru og Robert Schumann, Heitor Villa-Lobos og Skúla Hallldórsson í flutningi þriggja frábærra hljóðfæraleikara, Bjargar Brjánsdóttur á flautu, Hrafnhildar Mörtu Guðmundsdóttur á selló og Richard Schwennicke á píanó.

Gullfallegt Píanótríó Claude Debussy er þungavigtarverk þessara tónleika en verkið samdi franska tónskáldið einungis átján ára gamall, árið 1880. Hér hljómar tríóið í útgáfu fyrir þverflautu, selló og píanó en tónmál þessa draumkennda og ljóðræna verks hentar flautunni einkar vel. Þrjár rómönsur (1853) Clöru Schumann eru fullar af skemmtilegum andstæðum, trega jafnt sem dillandi leikgleði en rómönsurnar samdi Clara upphaflega fyrir fiðluvirtúósinn Josep Joachim. Það hljómar hér í töfrandi útgáfu fyrir flautu og píanó. Robert Schumann samdi Adagio og Allegro árið 1849 en þetta hárómantíska verk hljómar hér fyrir selló og píanó. Flauta og selló takast á og leika listir sínar í krefjandi og fjörugum dúett eftir Heitor Villa-Lobos og ekki má gleymdi titilverki tónleikanna, Mánasilfri Skúla Halldórssonar, heillandi en sjaldheyrðri perlu úr íslenskum tónbókmenntum.

Efnisskrá

Clara Schumann (1819 – 1896)
Þrjár rómönsur, op. 22

Robert Schumann (1810 – 1856)
Adagio og Allegro, op. 70

Heitor Villa-Lobos (1887 – 1959)
Assobio a Jato fyrir flautu og selló

Skúli Halldórsson (1914 – 2004)
Mánasilfur (fyrir flautu, selló og píanó)

Claude Debussy (1862 – 1918)
Píanótríó í G-dúr

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 12:30. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.

Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger