© 2024 Tix Ticketing
Salurinn
•
27 April
Ticket prices from
ISK 3,900
Undursamleg kammertónlist eftir Claude Debussy, Clöru og Robert Schumann, Heitor Villa-Lobos og Skúla Hallldórsson í flutningi þriggja frábærra hljóðfæraleikara, Bjargar Brjánsdóttur á flautu, Hrafnhildar Mörtu Guðmundsdóttur á selló og Richard Schwennicke á píanó.
Gullfallegt Píanótríó Claude Debussy er þungavigtarverk þessara tónleika en verkið samdi franska tónskáldið einungis átján ára gamall, árið 1880. Hér hljómar tríóið í útgáfu fyrir þverflautu, selló og píanó en tónmál þessa draumkennda og ljóðræna verks hentar flautunni einkar vel. Þrjár rómönsur (1853) Clöru Schumann eru fullar af skemmtilegum andstæðum, trega jafnt sem dillandi leikgleði en rómönsurnar samdi Clara upphaflega fyrir fiðluvirtúósinn Josep Joachim. Það hljómar hér í töfrandi útgáfu fyrir flautu og píanó. Robert Schumann samdi Adagio og Allegro árið 1849 en þetta hárómantíska verk hljómar hér fyrir selló og píanó. Flauta og selló takast á og leika listir sínar í krefjandi og fjörugum dúett eftir Heitor Villa-Lobos og ekki má gleymdi titilverki tónleikanna, Mánasilfri Skúla Halldórssonar, heillandi en sjaldheyrðri perlu úr íslenskum tónbókmenntum.
Efnisskrá
Clara Schumann (1819 – 1896)
Þrjár rómönsur, op. 22
Robert Schumann (1810 – 1856)
Adagio og Allegro, op. 70
Heitor Villa-Lobos (1887 – 1959)
Assobio a Jato fyrir flautu og selló
Skúli Halldórsson (1914 – 2004)
Mánasilfur (fyrir flautu, selló og píanó)
Claude Debussy (1862 – 1918)
Píanótríó í G-dúr
Á undan tónleikunum, klukkan 13:00 verður boðið upp á spjall um efnisskrá tónleikanna í forsal Salarins.
Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.