© 2026 Tix Miðasala
Seltjarnarneskirkja
•
4. desember
Miðaverð frá
9.800 kr.




Sígild jól 2026
Listamenn:
Sigríður Ósk Kristjánsóttir, mezzo-sópran.
Sigrún Hjáltýsdóttir, sópran.
Gissur Páll Gissurarson, tenór.
Tómas Guðni Eggertsson, orgel og píanó.
Hjörleifur Valsson, fiðla.
Júlía Mogensen, selló.
Tónleikarnir Sígild jól eru dásamleg upplifun á aðventunni. Tónleikarnir eru orðnir fastur liður í aðventu margra tónleikagesta. Þar sem tónleikarnir fara fram í kirkju og gestir eru í návígi við tónlistarfólkið skapast vinaleg og hátíðleg stemning.
Nokkrir af okkar fremstu sígildu söngvurum færa okkur fagra tóna við meðleik framúrskarandi hljóðfæraleikara. Tónlistin er aðallega sígild og fer aðeins út í jazz og dægurlög.
Á dagskránni er góð blanda af fallegum jólasöngvum og -sálmum íslenskum og erlendum. Má þar nefna perlur eins og Ave Maríur, dúettinn Con te partiro, Jólin alls staðar, Yfir fannhvíta jörð, Have yourself a merry little Christmas, Ó helga nótt og Heims um ból í gullfallegum dúett.
Í ár er 10 ára afmæli Sígildra jóla. Af því tilefni semur tónskáldið Bára Grímsdóttir jólalag sérstaklega fyrir tónleikana.
Listrænn stjórnandi tónleikanna er Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Seltjarnarneskirkju, sem opnar kl. 19:30 og það er frjálst sætaval.

