Sígild jól

Seltjarnarneskirkja

•

4. desember

Miðaverð frá

9.800 kr.

Sígild jól 2026
 

Listamenn:

Sigríður Ósk Kristjánsóttir, mezzo-sópran.

Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran.

Gissur Páll Gissurarson, tenór.

Tómas Guðni Eggertsson, orgel og píanó.

Matthías Stefánsson, fiðla.

Júlía Mogensen, selló.

Tónleikarnir Sígild jól eru dásamleg upplifun á aðventunni. Tónleikarnir eru orðnir ómissandi fastur liður í aðventu margra tónleikagesta. Þar sem tónleikarnir fara fram í kirkju og gestir eru í návígi við tónlistarfólkið skapast vinaleg og hátíðleg stemning.

 

Nokkrir af okkar fremstu sígildu söngvurum færa okkur fagra tóna við meðleik framúrskarandi hljóðfæraleikara. Tónlistin er aðallega sígild og fer aðeins út í jólajazz- og dægurlög.

 

Á dagskránni er góð blanda af fallegum jólasöngvum og -sálmum, íslenskum og erlendum. Má þar nefna perlur eins og Ave Maríur, dúettinn Con te partiro, Jólin alls staðar, Yfir fannhvíta jörð, Have yourself a merry little Christmas, Ó helga nótt og Heims um ból í gullfallegum dúett.

 

Í ár er 10 ára afmæli Sígildra jóla. Af því tilefni semur tónskáldið Bára Grímsdóttir jólalag sérstaklega fyrir tónleikana.

 

Hér eru nokkur ummæli ánægðra tónleikagesta:

„Hátíðlegt og nærandi fyrir sálina“

„Yndislegir tónleikar, frábær söngur, gleði og vinátta“

„Jólahlýja í hjartað“

„Listamenn á heimsmælikvarða“

Listrænn stjórnandi tónleikanna er Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.

 

Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Seltjarnarneskirkju, sem opnar kl. 19:30 og það er frjálst sætaval.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger