© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
15. - 23. október
Miðaverð frá
3.900 kr.




Kvöldstund með Ingu Steinunni er splunkunýtt uppistand. Áhorfendum er boðið upp á
sprenghlægilega kvöldskemmtun þar sem Inga mun fara yfir allt á milli himins og jarðar.
Inga Steinunn er 27 ára sviðshöfundur. Árið 2023 frumsýndi Inga frumraun sína í uppistandi Allt
í góðu lagi í Tjarnarbíói. Í kjölfarið hitaði hún upp fyrir Hugleik Dagsson og frumsýndi síðan
uppistandið Vangadans í Þjóðleikhúskjallaranum ásamt Hákoni Erni Helgasyni. Hún sýndi
vikulega með spunahópnum Improv Ísland frá árinu 2019-2025. Nýverið frumsýndi hún
leiksýninguna Leikritið í Afturámóti sem hún skrifaði og flutti.

