© 2026 Tix Miðasala
Gróska
•
19. nóvember
Sala hefst
15. september 2026, 10:00
(eftir 2 mánuði)




Framtíðardagur KPMG 2026
Hvernig breytum við óvissu í forskot?
Framtíðardagur KPMG verður haldinn annað árið í röð í Grósku fimmtudaginn 19. nóvember. Dagurinn skapar vettvang fyrir stjórnendur og leiðtoga í atvinnulífinu sem vilja skilja og móta næstu skref.
Með þátttöku innlendra og erlendra fyrirlesara verður sjónum m.a. beint að alþjóðastjórnmálum og þeim áhrifum sem þau hafa á rekstrarumhverfið. Jafnframt verða kynntar niðurstöður úr stjórnendakönnun KPMG, bæði á heimsvísu og á Íslandi, sem varpa ljósi á forgangsmál, áskoranir og tækifæri framundan.
Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara verða kynntar þegar nær dregur.
Miðasala hefst 15. september kl. 10.00.

