© 2026 Tix Miðasala
Gróska
•
19. nóvember
Miðaverð frá
24.900 kr.




Framtíðardagur KPMG 2026
Hvernig breytum við óvissu í forskot?
Framtíðardagur KPMG leiðir saman stjórnendur og leiðtoga úr íslensku atvinnulífi til að ræða þær breytingar sem munu móta rekstrarumhverfi næstu ára. Á dagskrá eru áhrif alþjóðamála á íslenskt atvinnulíf, sýn forstjóra á helstu tækifæri og áskoranir framundan, mannmiðuð gervigreind og reynsla leiðtoga af því að stýra umbreytingum í síbreytilegu umhverfi. Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta innsýn og skýrari grunn fyrir ákvarðanir til framtíðar.
Framtíðardagur KPMG verður haldinn annað árið í röð í Grósku fimmtudaginn 19. nóvember frá kl. 13:00-16:30.
Dagskrá
Navigating a New Geopolitical Reality:What CEOs Are Seeing Next
Stefano Moritsch
Global Geopolitics Lead, KPMG International
Hvaða áskoranir eru efstar á baugi hjá forstjórum heimsins og hvernig bregðast þeir við?
Stefano Moritsch dregur fram helstu niðurstöður Global CEO Outlook könnunar KPMG og hvað þær segja um vöxt, samkeppnishæfni og leiðtogahlutverkið á tímum umbreytinga. Stefano Moritsch er einn af leiðandi sérfræðingum KPMG á sviði alþjóðamála.
Viðhorf íslenskra og alþjóðlegra forstjóra
Hafþór Ægir Sigurjónsson
Forstöðumaður rekstrarráðgjafar og meðeigandi KPMG
Hvernig horfa íslenskir forstjórar til framtíðar í samanburði við stjórnendur erlendis?
Hafþór Ægir Sigurjónsson fer yfir helstu niðurstöður CEO Outlook könnunar KPMG á Íslandi og ber þær saman við alþjóðlegar niðurstöður. Fjallað verður um sýn stjórnenda á hagvöxt, áhættu, gervigreind og þau tækifæri og áskoranir sem móta rekstrarumhverfið á komandi árum.
Kaffihlé
Shaping humanity's future in an increasingly tech-driven world
Kate O´Neill
Chief Tech Humanist, KO Insights
Kate O’Neill er einn af fremstu hugsuðum heims á mótum tækni, gervigreindar og mannlegrar upplifunar. Sem stofnandi og forstjóri KO Insights hefur hún ráðlagt fyrirtækjum og stofnunum á borð við Google, Microsoft, IBM og Sameinuðu þjóðirnar um hvernig megi nýta tækni til að skapa raunverulegt virði fyrir fólk og samræma tækniframfarir og mannleg gildi.
Forysta á tímum umbreytinga:
Pallborðsumræður stjórnenda
Ásgeir Skorri Thoroddsen, meðeigandi KPMG Law, stýrir pallborðsumræðum þar sem stjórnendur deila sýn sinni á þær umbreytingar sem móta rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig þeir bregðast við nýjum tækifærum og áskorunum.
Móttaka að dagskrá lokinni

