Frá nýja heiminum - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

•

14. janúar

Miðaverð frá

3.100 kr.

  Isabelle Faust hefur verið einn eftirsóttasti fiðluleikari heims um árabil. Hún er Íslendingum að góðu kunn eftir að hafa verið staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á árunum 2010-11 og heimsótt okkur nokkrum sinnum eftir það. Á þessum tónleikum leikur hún Oracle, glænýjan fiðlukonsert eftir Philippe Manoury, eitt fremsta núlifandi tónskáld Frakka. Faust frumflutti konsertinn nýlega með SWR-sinfóníuhljómsveitinni í Stuttgart og nú fá íslenskir áheyrendur að heyra hann í fyrsta sinn. Þá verður frumflutt tónverkið Djúpið – Sálumessa eftir Hjálmar H. Ragnarsson, en hann lést í mars 2026.   

Hljómsveitarstjóri
  Olari Elts 

Einleikari
Isabelle Faust 

Efnisskrá
Hjálmar H. Ragnarsson  Djúpið – Sálumessa, frumflutningur
Philippe Manoury Oracle, fiðlukonsert
Antonín Dvořák  Sinfónía nr. 9 í E-moll,  „Frá nýja heiminum“  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger