© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
14. janúar
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Isabelle Faust hefur verið einn eftirsóttasti fiðluleikari heims um árabil. Hún er Íslendingum að góðu kunn eftir að hafa verið staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á árunum 2010-11 og heimsótt okkur nokkrum sinnum eftir það. Á þessum tónleikum leikur hún margverðlaunaðan fiðlukonsert eftir eitt þekktasta núlifandi tónskáld Ástralíu, Brett Dean, þar sem viðfangsefnið er hin týnda list bréfaskrifta. Þá verður frumflutt tónverkið Djúpið – Sálumessa eftir Hjálmar H. Ragnarsson, en hann lést í mars 2026. Í þessu tregafulla verki minnist hann vina og annarra sem gengið hafa af eigin hvötum yfir þröskuldinn sem aðskilur okkar verun og heim hins óþekkta. Djúpið – Sálumessa var síðasta hljómsveitarverkið sem Hjálmar lauk við. Tónleikunum lýkur svo með hinni sívinsælu sinfóníu Dvořáks, Frá nýja heiminum, sem snertir enn við áheyrendum með ó gleym an legum laglínum og hrífandi dramatík.
Hljómsveitarstjóri
Olari Elts
Einleikari
Isabelle Faust
Efnisskrá
Hjálmar H. Ragnarsson Djúpið – Sálumessa, frumflutningur
Brett Dean The Lost Art of Letter Writing, fyrir fiðlu og hljómsveit
Antonín Dvořák Sinfónía nr. 9 í E-moll, „Frá nýja heiminum“

