© 2026 Tix Miðasala

Afturámóti ehf
•
11. - 19. júlí
Miðaverð frá
4.990 kr.




Auðvitað elska ég mömmu
Hvernig er manneskjan sem þú elskar mest, sem er þinn besti vinur en einnig
þinn mesti og stærsti óvinur, útsettur til þess að „eyðileggja” lífið þitt með ást
sinni?
Kona sem ætlaði aldrei að vera eins og mamma sín er móðir ungrar dóttur sem er auk þess besta vinkona hennar - en dóttirin er að verða að unglingi og er byrjuð að fjarlægjast móður sína. Móðirin sér sjálfa sig í dóttur sinni og á sama tíma rifjast upp fyrir henni hvernig hún hagaði sér gagnvart sinni mömmu; skömm og eftirsjá, en sömuleiðis pirringur rís á yfirborðið - enda er mamma hennar ennþá til staðar og hættir aldrei að skipta sér af börnunum sínum.
Segirðu við mömmu þína að þú elskir hana? „Já mjög mikið. Segjum það alveg óspart við hvora aðra.” „Nei. Auðvitað á maður að gera það en ég geri það ekki.”
Auðvitað elska ég mömmu er glænýtt íslensk leikrit um flækjurnar í samböndum mæðgna. Verkið er unnið upp úr viðtölum og reynslusögum kvenna um mæður þeirra og þeirra sambönd við þær.
Mæðgnasambönd eru fallega flókin og fjölbreytt. Sumir þrá fjarlægð og aðrir nánd, sumir vilja gera allt í sínu valdi til að vera eins og móðir sín aðrir vilja gera allt öfugt, þó það takist ekki alltaf, sumir finna sína bestu vinkonu í móður sinni á meðan aðrir eru ekkert nánir mæðrum sínum og hafa aldrei verið. Baráttan um sjálfstæði getur enn verið í fullu gangi jafnvel þó maður sé komin vel á fertugsaldurinn en þörfin fyrir mömmu er sömuleiðis stöðugt til staðar. Skömm, sektarkend, pirringur og ást geta verið til staðar allt á sama tíma. Þó ástin sem móðir þín bíður þér er ekki endilega alltaf sú ást sem þú vilt frá henni.
Leikarar
Birgitta Birgisdóttir
Edda Guðnadóttir
Rafney Birna Guðmundsdóttir
Rósa Guðný Þórsdóttir
Framleiðsla
Afturámóti
Afturámóti samanstendur af ungu og upprennandi sviðslistafólki sem hafa haldið uppi sviðslistahúsi síðastliðin tvö sumur í Háskólabíói. Afturámóti hlaut hvatningarverðlaun Grímunnar árið 2025.
Höfundur og leikstjóri
Karla Aníta Kristjánsdóttir
Aðstoðarleikstjórn
Jónsi Hannesson
Tónlist og hljóðhönnun
Anna Róshildur
Sviðshreyfingar
Birta Ásmundsdóttir
Ljósahönnun
Anna Kristín
Leikmynda- og búningahönnun
● Anna Lovísa Davíðsdóttir
Ljósmyndun
Stefanía Elín Linnet
Grafísk hönnun
Karla Aníta Kristjánsdóttir
Framleiðslu- og sýningarstjórn
Máni Huginsson
Framleiðendur
Höskuldur Þór Jónsson
Ingi Þór Þórhallsson
Karla Aníta Kristjánsdóttir
Kristinn Óli S. Haraldsson
Máni Huginsson

