Auðvitað elska ég mömmu

Afturámóti ehf

4 sýningar

Miðaverð frá

4.990 kr.

  Hvernig er manneskjan sem þú elskar mest, sem er þinn besti vinur en einnig þinn mesti og stærsti óvinur, útsettur til þess að „eyðileggja” lífið þitt með ást sinni?  

  Kona sem ætlaði aldrei að vera eins og mamma sín er móðir ungrar dóttur sem er auk þess besta vinkona hennar - en dóttirin er að verða að unglingi og er byrjuð að fjarlægjast móður sína. Móðirin sér sjálfa sig í dóttur sinni og á sama tíma rifjast upp fyrir henni hvernig hún hagaði sér gagnvart sinni mömmu; skömm og eftirsjá, en sömuleiðis pirringur rís á yfirborðið - enda er mamma hennar ennþá til staðar og hættir aldrei að skipta sér af börnunum sínum.   

  Segirðu við mömmu þína að þú elskir hana? „Já mjög mikið. Segjum það alveg óspart við hvora aðra.” „Nei. Auðvitað á maður að gera það en ég geri það ekki.”   

  Auðvitað elska ég mömmu er glænýtt íslensk leikrit um flækjurnar í samböndum mæðgna. Verkið er unnið upp úr viðtölum og reynslusögum dætra og mæðra.   

Ljósahönnun
Anna Kristín


Ljósmyndun
Stefanía Elín Linnet


Grafísk hönnun
Karla Aníta Kristjánsdóttir


Framleiðslu- og sýningarstjórn
Máni Huginsson


Framleiðendur
Höskuldur Þór Jónsson
Ingi Þór Þórhallsson
Karla Aníta Kristjánsdóttir
Kristinn Óli S. Haraldsson
Máni Huginsson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger