Hraustir menn í heila öld - Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur

Langholtskirkja

22. - 25. apríl

Miðaverð frá

7.000 kr.

Hraustir menn í heila öld - Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur

Karlakór Reykjavíkur heldur sína árlegu vortónleika í Langholtskirkju dagana 22., 23., 24.,  og 25. apríl næstkomandi. Tónleikaröðin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni aldarafmælis kórsins en þann 3. janúar síðastliðin voru 100 ár liðin frá stofnun hans.

Frá  árnu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt Karlakór Reykjavíkur og á þessari einstöku afmælistónleikaröð verður bilið milli kynslóða brúað með dyggri aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórasamfélaginu þar sem stórvirki gömlu meistaranna verða rifjuð upp auk þess sem flutt verða léttari sönglög af íslenskum og erlendum toga.

Alls verða haldnir fimm tónleikar og mun hver þeirra hafa á sér einstakt yfirbragð með aðkomu ólíkra gestakóra.

Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson
Píanóleikari er Peter Maté.
Orgelleikari er Lenka Mátéová  

Miðvikudaginn 22. apríl kl. 20.00

Karlakór Reykjavíkur
Gestakórar:

  • Karlakór Reykjavíkur Eldri félagar

  • Karlakór Kjalnesinga

  • Karlakór Kópavogs


Fimmtudaginn 23. apríl kl. 15.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakór:

  • Karlakór Selfoss


Fimmtudaginn 23. apríl kl. 20.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakór:

  • Karlakórinn Heimir

Föstudaginn 24. apríl kl. 20.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakórar:

  • Karlakórinn Fóstbræður

  • Tórshavnar Manskór frá Færeyjum


Laugardaginn 25. apríl kl. 15.00 
Karlakór Reykjavíkur
Gestakórar:

  • Karlakór Reykjavíkur Eldri félagar

  • Tórshavnar Manskór frá Færeyjum

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger