© 2026 Tix Miðasala
Langholtskirkja
•
22. - 25. apríl
Miðaverð frá
7.000 kr.




Hraustir menn í heila öld - Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur heldur sína árlegu vortónleika í Langholtskirkju dagana 22., 23., 24., og 25. apríl næstkomandi. Tónleikaröðin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni aldarafmælis kórsins en þann 3. janúar síðastliðin voru 100 ár liðin frá stofnun hans.
Frá árnu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt Karlakór Reykjavíkur og á þessari einstöku afmælistónleikaröð verður bilið milli kynslóða brúað með dyggri aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórasamfélaginu þar sem stórvirki gömlu meistaranna verða rifjuð upp auk þess sem flutt verða léttari sönglög af íslenskum og erlendum toga.
Alls verða haldnir fimm tónleikar og mun hver þeirra hafa á sér einstakt yfirbragð með aðkomu ólíkra gestakóra.
Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson
Píanóleikari er Peter Maté.
Orgelleikari er Lenka Mátéová
Miðvikudaginn 22. apríl kl. 20.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakórar:
Karlakór Reykjavíkur Eldri félagar
Karlakór Kjalnesinga
Karlakór Kópavogs
Fimmtudaginn 23. apríl kl. 15.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakór:
Karlakór Selfoss
Fimmtudaginn 23. apríl kl. 20.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakór:
Karlakórinn Heimir
Föstudaginn 24. apríl kl. 20.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakórar:
Karlakórinn Fóstbræður
Tórshavnar Manskór frá Færeyjum
Laugardaginn 25. apríl kl. 15.00
Karlakór Reykjavíkur
Gestakórar:
Karlakór Reykjavíkur Eldri félagar
Tórshavnar Manskór frá Færeyjum

