© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
13. maí
Miðaverð frá
4.900 kr.




Stefán S. Stefánsson, saxófónn
Björn Thoroddsen, gítar
Þórir Baldursson, píanó
Bjarni Sveinbjörnsson, bassi
Sigfús Óttarsson trommur
Íslenska jazzrokksveitin Gammar hefur um langt skeið verið áberandi afl í íslensku tónlistarlífi. Sveitin hefur markað sér skýra stöðu innan jazz-rokksins og sent frá sér fjórar hljómplötur með frumsömdu efni eftir meðlimi hljómsveitarinnar. Gammar hafa komið fram víða, bæði hérlendis og erlendis, meðal annars í Svíþjóð, Skotlandi og víðar í Evrópu. Í sveitinni leika tónlistarmenn með áratuga reynslu. Frá stofnun hafa þrír verið fastir meðlimir: gítarleikarinn Björn Thoroddsen, saxófónleikarinn Stefán S. Stefánsson og píanó- og orgelleikarinn Þórir Baldursson. Með þeim spila Bjarni Sveinbjörnsson á bassa og Sigfús Óttarsson á trommur.

