Gammar - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

13. maí

Miðaverð frá

4.900 kr.

Stefán S. Stefánsson, saxófónn

Björn Thoroddsen, gítar

Þórir Baldursson, píanó

Bjarni Sveinbjörnsson, bassi

Sigfús Óttarsson trommur

Íslenska jazzrokksveitin Gammar hefur um langt skeið verið áberandi afl í íslensku tónlistarlífi. Sveitin hefur markað sér skýra stöðu innan jazz-rokksins og sent frá sér fjórar hljómplötur með frumsömdu efni eftir meðlimi hljómsveitarinnar. Gammar hafa komið fram víða, bæði hérlendis og erlendis, meðal annars í Svíþjóð, Skotlandi og víðar í Evrópu. Í sveitinni leika tónlistarmenn með áratuga reynslu. Frá stofnun hafa þrír verið fastir meðlimir: gítarleikarinn Björn Thoroddsen, saxófónleikarinn Stefán S. Stefánsson og píanó- og orgelleikarinn Þórir Baldursson. Með þeim spila Bjarni Sveinbjörnsson á bassa og Sigfús Óttarsson á trommur.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger