Erik Qvick og Jazzsendiboðarnir - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

29. apríl

Miðaverð frá

4.900 kr.

Snorri Sigurðarson, trompet

Ólafur Jónsson, saxófónn

Kjartan Valdemarsson, píanó

Þorgrímur Jónsson, bassi

Erik Qvick, trommur

Hljómsveitin Jazzsendiboðarnir, skipuð nokkrum af reyndustu djassleikurum landsins, lyftir hattinum fyrir goðsögnum Hard Bop-tímabilsins. Sveitin hefur verið starfandi frá árinu 2007 og er kvintettinn leiddur af trommuleikaranum Erik Qvick. Jazzsendiboðarnir hafa komið fram á tónleikum víða. Leikin verða lög eftir Benny Golson, Duke Pearson, Bill Hardman, Blue Mitchell og fleiri, þar sem áherslan er á mikla sveiflu, lagræn sóló og almennan hressleika.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger