© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
29. apríl
Miðaverð frá
4.900 kr.




Snorri Sigurðarson, trompet
Ólafur Jónsson, saxófónn
Kjartan Valdemarsson, píanó
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Hljómsveitin Jazzsendiboðarnir, skipuð nokkrum af reyndustu djassleikurum landsins, lyftir hattinum fyrir goðsögnum Hard Bop-tímabilsins. Sveitin hefur verið starfandi frá árinu 2007 og er kvintettinn leiddur af trommuleikaranum Erik Qvick. Jazzsendiboðarnir hafa komið fram á tónleikum víða. Leikin verða lög eftir Benny Golson, Duke Pearson, Bill Hardman, Blue Mitchell og fleiri, þar sem áherslan er á mikla sveiflu, lagræn sóló og almennan hressleika.

